Ásgeir Torfason · Tréskurðarlistamaður · 1927–2001
Arfur í
nýju formi.
Verk Ásgeirs Torfasonar frá Halldórsstöðum í Laxárdal og nýr kafli í sögu þeirra.
Kynnast Ásgeiri
Úr viðtalinu „Allt byggt á þjóðlegri hefð“.
Skoða úrklippuna ↗
1927–2001
Ásgeir
Torfason
Ásgeir ólst upp á Halldórsstöðum í Laxárdal. Hann lærði útskurð af eigin reynslu, af handbragði heimamanna og af því að skoða smíðisgripi.
Hann og Hjálmar bróðir hans smíðuðu saman og lærðu hvor af öðrum. Fyrst seldu þeir bréfahnífa, síðar aska og kistla. Ásgeir varð búfræðingur frá Hvanneyri og stundaði búskap á Halldórsstöðum, en sinnti útskurðinum þegar tími gafst.
Árið 1969 fluttu hann og Hrafnhildur Ólafsdóttir, eiginkona hans, til Reykjavíkur. Þar varð útskurðurinn að aðalstarfi. Um árabil rak hann verkstæði á Laugavegi 89 og seldi verk sín meðal annars í gegnum Heimilisiðnaðarfélag Íslands.
Byggt á grein Þóris Sigurðssonar í Hug og hönd, 1996, bls. 29–31.
„Ég hef ætíð reynt að styðjast við hefðbundið form en reyni samt að útfæra gamla íslenska skurðstílinn á persónulegan hátt.“
Handbragðið
Hér er sýndur lítill hluti þeirra muna sem Ásgeir smíðaði og skar út. Útskurðurinn fylgir lögun gripanna, fyllir lok, rammar inn myndir og liggur í böndum um hliðar þeirra.
Meira en mynstur
Í verkunum birtast líka meðal annars fuglar, skip, bæir og landið sjálft. Myndefnið er ýmist skorið í flöt eða mótað sem sjálfstæður gripur.
Askur á
frímerki
Árið 1976 birtist askur eftir Ásgeir á íslensku frímerki.
Í greininni „Útskurðarmeistarinn Ásgeir Torfason“ er sagt frá því að mynd af aski sem hann smíðaði og skar út hafi verið notuð á frímerki. Þar er einnig greint frá sýningum á verkum hans í London og Kaupmannahöfn á vegum Heimilisiðnaðarfélags Íslands.
Hugur og hönd, 1996, bls. 30–31. Ártalið 1976 kemur fram á frímerkinu.
Úr viðtali
„Ég vinn alla mína vinnu í höndunum því ég finn að fólk kann að meta vandaða vinnu.“
Ásgeir lýsir því hvernig hann styðst við gömul form og útfærir þau á sinn hátt. Í sama viðtali segir hann frá upphafi útskurðarins í æsku og samstarfinu við Heimilisiðnaðarfélagið.
Hugur og hönd · 1996
Útskurðarmeistarinn
Ásgeir Torfason
Þórir Sigurðsson heimsótti Ásgeir á verkstæði hans í Þingholtsstræti. Í viðtalinu segir Ásgeir frá uppvextinum, smíðunum og því hvernig útskurðurinn varð að ævistarfi.
Greinin í heild, bls. 29–31.
Texti: Þórir Sigurðsson. Ljósmyndir: Guðmundur Ingólfsson / Ímynd.
Verkin fá
framhald.
TORF er sprottið úr fjölskyldu Ásgeirs. Berglind Ólafsdóttir, barnabarn hans, og Ólafur Ásgeirsson, sonur hans, standa að verkefninu.
Með TORF vilja þau halda verkum hans á lofti og vinna áfram með þau í nýrri hönnun. Fjölskyldan veitir aðgang að gripunum sem verða skráðir, ljósmyndaðir og valdir til frekari rannsóknar.
Skoðað verður hvernig form, mynstur og dýpt útskurðar geta nýst í heimilismunum úr öðrum efnum en viði. Hluta mynsturs má einfalda, stækka eða setja í nýtt samhengi. Tengslin við verk Ásgeirs verða sýnd með ljósmyndum og skráningu hönnunarferlisins.

